Skilmálar
Síðast uppfært: nóvember 3, 2025
Leiguskilmálar MiniRent
Almennt
Með því að leigja vörur frá MiniRent samþykkir viðskiptavinurinn eftirfarandi skilmála. Þar sem stendur við, okkur og okkar er átt við MiniRent.
Við mælum með því að lesa skilmálana vandlega áður en gengið er frá bókun.
MiniRent er í eigu og er rekið af Rentaparty ehf. (kt. 650119-1380).
Verð
Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK). Viðskiptavinurinn greiðir að fullu fyrir leiguna (og önnur umsamin gjöld) um leið og gengið er frá bókun. Öll verð innihalda leigu, VSK og eðlileg þrif og meðhöndlun.
Greiðslufyrirkomulag
Til að ganga frá bókun þarf viðskiptavinurinn að nota greiðslukort. Við tökum við flestum greiðslukortum. Upplýsingum um greiðslukortið sem notað er til greiðslu fyrir bókun skal ekki vera breytt fyrr en leigutímabili lýkur. Í ákveðnum tilfellum gætu greiðslukortaupplýsingar verið notaðar til að rukka fyrir tjón eða aðra misnotkun á vörum okkar líkt og útskýrt er síðar í þessum skilmálum.
Afhending
Þegar leigutímabil hefst og viðskiptavinur fær vöruna afhenda, er það á ábyrgð viðskiptavinarins að tryggja að varan sé í ásættanlegu ástandi.
Vörur verða afhentar á upphafsdegi leigutímabilsins og skil á vörum skulu fara fram á lokadegi leigutímabilsins. Ef viðskiptavinurinn óskar eftir því að fá vöruna afhenta á öðrum degi, til dæmis daginn áður, eða að skila vörunni daginn eftir, þá er það ábyrgð viðskiptavinarins að bóka þá daga með.
Breytingar, afbókanir og endurgreiðslur
Til að breyta eða hætta við bókanir skulu viðskiptavinir hafa samband við okkur með tölvupósti á netfangið minirent@minirent.is, og tilkynna okkur um breytingarnar eða afbókanirnar.
- Full endurgreiðsla: Viðskiptavinir geta breytt eða hætt við bókanir allt að 7 dögum fyrir upphafstíma leigu, án endurgjalds.
- Breytingar með skemmri fyrirvara: Í þeim tilfellum þar sem viðskiptavinur óskar eftir að breyta bókun með styttri fyrirvara þarf að hafa samband við þjónustuver okkar. Hvert tilfelli er skoðað fyrir sig og veltur á því hvort vara sé laus.
- Afbókanir innan 7 daga: Afbókanir sem gerðar eru innan 7 daga frá upphafstíma leigu eru óendurgreiðanlegar.
Við bjóðum upp á sveigjanlegan frest þegar vörur eru afhentar á fyrirfram ákveðnum stað. Afhendingartíminn er þá sveigjanlegur um 1 klukkustund. Í tilfellum seinkana eða aflýsinga á flugi erum við sveigjanlegri. Við hvetjum viðskiptavini okkar til að halda okkur vel upplýstum í slíkum tilfellum.
Ef viðskiptavinurinn hefur ekki látið okkur vita innan klukkustundar frá ákveðnum afhendingartíma, áskiljum við okkur réttinn til að dæma bókunina sem „no-show“ (ósótt bókun) og missir þá viðskiptavinurinn réttinn á vörunni. Bókanir sem eru dæmdar „no-show“ eru ekki endurgreiddar.
Framlenging á leigu
Ef leigjandi sér fram á að hann geti ekki skilað vörunni á umsömdum tíma skal hann tilkynna MiniRent það án tafar.
Mögulega er hægt að gera samkomulag um framlengingu, en það er háð samþykki MiniRent og stöðu lagers. Ef samkomulag næst fær leigjandi reikning sem skal greiða án tafar. Leigjandi greiðir það dagsverð sem er í gildi á heimasíðu okkar fyrir þá daga sem bætt er við.
Framlenging telst ekki staðfest fyrr en leigjandi hefur greitt fyrir hana.
- Ef ekkert samkomulag næst eða leigjandi lætur ekki vita af töf á skilum bætist við dagssekt sem samsvarar eins dags leiguverði vörunnar, fyrir hvern dag sem líður þar til vörunni er skilað.
- Ef vöru er ekki skilað innan þriggja daga frá lokadegi leigutímabils og engin tilkynning hefur borist áskilur MiniRent sér rétt til að innheimta fullt söluandvirði vörunnar. Eftir það telst leigjandi eigandi hennar.
Bókanir með stuttum fyrirvara
Einungis er hægt að bóka með meira en 48 klukkustunda fyrirvara í gegnum heimasíðu MiniRent. Fyrir bókanir með styttri fyrirvara skulu viðskiptavinir hafa samband í gegnum tölvupóst (minirent@minirent.is).
3.990 króna aukagjald leggst ofan á heildarverð bókunar sem gerð er með minna en 48 klukkustunda fyrirvara.
Notkun
Viðskiptavinir skulu fara vel með vörurnar okkar og fylgja leiðbeiningum. Viðskiptavinum er meinað að menga vörur með sterklyktandi efnum/athöfnum eins og reykingum. Ef sú regla er brotin og ekki er hægt að leigja vöruna aftur verður litið á vöruna sem skemmda.
Allar kerrur og bílstólar sem fara í flug sem innritaður farangur verða að vera í bólstraðri tösku. Viðskiptavinir geta notað sína eigin tösku eða leigt tösku hjá MiniRent. Ef tjón verður á vöru sem er ekki í bólstraðri tösku ber leigjanda að greiða fyrir tjónið. Ef leigjandi hefur keypt tjónatryggingu fellur hún úr gildi ef varan var innrituð án bólstraðrar tösku.
Ábyrgð
- Skemmdir eða tap: Ef vöru er skilað í slæmu ástandi (t.d. brotinni), henni stolið eða hún týnist, verður greiðslukortið rukkað um allt að heildarvirði vörunnar. Við reynum ávallt að lágmarka kostnað og meta hvert tilfelli fyrir sig.
- Óeðlileg óhreinindi: Ef vöru er skilað óeðlilega skítugri, með blettum sem erfitt er að ná úr eða með vondri lykt (t.d. reykingalykt), verður sérstakt þrifgjald að upphæð 5.000 kr. rukkað.
MiniRent ber enga ábyrgð á framleiðslu- eða hönnunargöllum á vörum. Það er á ábyrgð viðskiptavinarins að afla sér upplýsinga um vöruna fyrir notkun.
Ef vara skemmist, eyðileggst eða týnist í vörslu leigjanda ber honum að tilkynna MiniRent það tafarlaust.
Vörur
Vörur geta verið lítillega öðruvísi en myndir sýna. Myndir á síðunni og í auglýsingum eru aðeins í lýsandi tilgangi. Þó við leggjum okkur fram við að sýna liti rétt, getum við ekki ábyrgst að skjár hvers tækis sýni réttan lit.
Sumar vörur eru til í nokkrum litum. Ef viðskiptavinur óskar ekki eftir sérstökum lit verður litur valinn af handahófi. Við getum ekki ábyrgst að allir litir séu ávallt til á lager.
Skyldur viðskiptavina varðandi leigu á bílstólum
Samkvæmt íslenskum lögum mega bílstólar sem lenda í árekstri, bílslysi eða verða fyrir höggi ekki vera notaðir fyrir börn. Viðskiptavinir eru skyldugir til að tilkynna okkur um öll slík tilvik.
Skattar og gjöld
Öll verð á síðunni innihalda VSK og allir reikningar eru gefnir út með VSK.
Breytingar á þessum skilmálum
MiniRent áskilur sér réttinn til að breyta þessum skilmálum hvenær sem er. Breytingar taka gildi um leið og þær birtast á heimasíðunni. Sú útgáfa sem birtist á síðunni er ávallt sú útgáfa sem er í gildi.