iPad í bláu barnahulstri með handfangi

iPad með barnahulstri


Langt flug eða löng bílferð verður mun rólegri með uppáhaldsþættina við höndina. Leigðu iPad í sterku barnahulstri, skráðu þig inn á þína eigin streymisveitu, t.d. Netflix eða Disney+, og hladdu niður efni áður en lagt er af stað.

Eiginleikar:

  • iPad með stórum og skýrum skjá.
  • Mjúkt og höggþolið barnahulstur sem þolir að detta í gólfið.
  • Handfang sem auðvelt er fyrir litlar hendur að halda í og nýtist líka sem standur á borðið í flugvélinni.
  • Þú skráir þig inn á þína eigin aðganga, t.d. Netflix, Disney+, YouTube Kids eða sambærilegt.
  • iPadinn er endurstilltur á milli viðskiptavina svo þínar upplýsingar og aðgangar fylgja honum ekki.

Gott að vita:

  • Hladdu niður þáttum og myndum á meðan þú ert enn á Wi-Fi. Í flestum flugvélum er ekkert netsamband og flestar streymisveitur leyfa að horfa á niðurhalað efni án nettengingar.
  • Mundu eftir heyrnartólum fyrir barnið.

Hentar fyrir:

Börn á öllum aldri í flugi, á ferðalögum eða í bústaðnum.

Það sem fylgir:

  • iPad
  • Barnahulstur með handfangi og standi (litur getur verið breytilegur)

Allar okkar vörur eru vandlega þrifnar og sótthreinsaðar á milli viðskiptavina.

Customer Reviews

Naga

So where do i start. I dont know the names but a lady helped me find a stroller even though i didnt book in advance and then a muscular guy 🤣 helped in finishing with booking process. The product was in great condition. The return process was smooth. Absolutely recommended. Will for sure avail their services for other products again. Make sure to look for a door with PARTY name instead of minirent.

Ásrún Óskarsdóttir

Frábært þjónusta og kerra og ferðataska í toppstandi! Voru mjög stundvís varðandi afhendingu og skil á vörunni. Mun nota þjónustuna aftur 

Sonja Nikulásdóttir

Vá! Ég vill bara byrja á því að þakka fyrir okkur! Ég fékk svo frábæra þjónustu, þau voru boðin og búin að hjálpa. Þau mættu fyrr en auglýst er með allt dótið sem við pöntuðum þegar ég var alveg tilbúin að taka auka dag.
Topp þjónusta sem við munum klárlega nýta okkur fyrir næsta ferðalag!