Bílstóll (0-4 ára)


Maxi Cosi Mica Pro Eco er i-Size bílstóll sem hentar frá fæðingu upp að 4 ára aldri. Hann uppfyllir hæstu öryggisstaðla (R129) og er með 360° snúningi sem gerir það einstaklega þægilegt að setja barnið í og taka það úr stólnum.

Eiginleikar:

  • 360° snúningur fyrir aukin þægindi.
  • Hægt að nota bakvísandi eða framvísandi.
  • Sérstök hliðarvörn og verndandi höfuðstuðningur.
  • Festist eingöngu með ISOFIX (ekki hægt að nota bílbelti).
  • „Baby Hugg“ ungbarnainnlegg fylgir.

Hentar fyrir:

Fyrir börn frá fæðingu upp í u.þ.b. 4 ára aldur (að 105 cm / 18 kg).

Mikilvægt varðandi flugferðir:

Ef stóllinn er bókaður til að taka með í flug, vinsamlegast kynntu þér farangursreglur flugfélagsins. Ef stóllinn er innritaður sem farangur verður hann að vera í hlífðartösku. Hægt er að nota eigin tösku eða leigja hana hér.


Allar okkar vörur eru vandlega þrifnar og sótthreinsaðar á milli viðskiptavina.

Customer Reviews

Ásrún Óskarsdóttir

Frábært þjónusta og kerra og ferðataska í toppstandi! Voru mjög stundvís varðandi afhendingu og skil á vörunni. Mun nota þjónustuna aftur 

Sonja Nikulásdóttir

Vá! Ég vill bara byrja á því að þakka fyrir okkur! Ég fékk svo frábæra þjónustu, þau voru boðin og búin að hjálpa. Þau mættu fyrr en auglýst er með allt dótið sem við pöntuðum þegar ég var alveg tilbúin að taka auka dag.
Topp þjónusta sem við munum klárlega nýta okkur fyrir næsta ferðalag!

Naga

So where do i start. I dont know the names but a lady helped me find a stroller even though i didnt book in advance and then a muscular guy 🤣 helped in finishing with booking process. The product was in great condition. The return process was smooth. Absolutely recommended. Will for sure avail their services for other products again. Make sure to look for a door with PARTY name instead of minirent.