Ungbarnabílstóll (0-12 mánaða)


Þessi Maxi-Cosi ungbarnabílstóll veitir hámarks vernd og uppfyllir nýjasta I-Size (R129) öryggisstaðalinn. Stóllinn er léttur og kemur með sérstöku nýbura innleggi (fyrir börn upp að 60cm) sem veitir minnstu börnunum aukin þægindi og öryggi. Hægt er að festa stólinn með bílbeltinu en við mælum með base-inu sem fylgir fyrir aukið öryggi.

Eiginleikar:

  • Uppfyllir nýjasta I-Size (R129) öryggisstaðalinn.
  • Hægt að festa með bílbelti eða með base-i sem fylgir.
  • Innbyggt 3-punkta öryggisbelti.
  • Er bakvísandi fyrir hámarks öryggi.
  • Léttur, vegur aðeins 3,9kg.

Hentar fyrir:

Fyrir börn frá fæðingu upp í u.þ.b. 12 mánaða aldur (45-75 cm).


Allar okkar vörur eru vandlega þrifnar og sótthreinsaðar á milli viðskiptavina.

Customer Reviews

Ásrún Óskarsdóttir

Frábært þjónusta og kerra og ferðataska í toppstandi! Voru mjög stundvís varðandi afhendingu og skil á vörunni. Mun nota þjónustuna aftur 

Naga

So where do i start. I dont know the names but a lady helped me find a stroller even though i didnt book in advance and then a muscular guy 🤣 helped in finishing with booking process. The product was in great condition. The return process was smooth. Absolutely recommended. Will for sure avail their services for other products again. Make sure to look for a door with PARTY name instead of minirent.

Sonja Nikulásdóttir

Vá! Ég vill bara byrja á því að þakka fyrir okkur! Ég fékk svo frábæra þjónustu, þau voru boðin og búin að hjálpa. Þau mættu fyrr en auglýst er með allt dótið sem við pöntuðum þegar ég var alveg tilbúin að taka auka dag.
Topp þjónusta sem við munum klárlega nýta okkur fyrir næsta ferðalag!